Party-Animals
~ Litlu Krílin ~
Myndasöfn
17.01.2008 18:39:45 / iris

DAVE SPOON!!!!!

 

PLÖTUSNÚÐURINN DAVE SPOON VERÐUR Á NASA FÖSTUDAGINN 1.FEBRÚAR! OG SJALLANUM AKUREYRI 2.FEBRÚAR!! EINS ÁRS AFMÆLI AGENT.IS. FORSALA HAFINN Í LEVI'S KRINGLUNNI OG SMÁRANUM! 2000 KRÓNUR MIÐINN Í FORSÖLU Á MEÐAN BIRGÐIR ENDAST!! VILT EKKI MISSA AF ÞESSU!!

Image and video hosting by TinyPic


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 23:04:46 / iris

Aðeins að tjá sig á grimmndini í þessum heimi

 

 Hvernig getur verið svona mikil grimmd í þessum heimi!?!?

Ég fékk sent myndband af dýrum, þegar það er verið að taka skinnið(lifandi) af þeim til að gera pelsa og allan þann andskota! Og þvílíkt hef eg bara alldrei séð,ég hef alldrei á minni ævi séð svona mikla grimmd!! Ég bara réð ekki við mig og fór að grenja! Ég skil ekki hvernig manneskja getur gert svona lagað við saklaust dýr sem hefur ekkert gert mannverum mein! Mig langar kláralega að fljúga til USA og fara á þessi bú þar sen dýrin eru geymnd og pína þessa andskota þanngað til að þeir bijða mig um að drepa sig!! Án djóks, mér er allveg sama þótt þeir eigi konur og börn! Þeir eiga skilið að kveljast meira en þessi saklaus dýr! Miklu meira!!

Það er svo sorglegt hve mikil dýramisþyrming er til! Og að fólk skuli NJÓTA þess! Þessir andskotar! T.D að missþyrma dýranum fyrir fokkings pels!!! Að manneskja geti keyft sér pels og gengið í honum eftir að dýrin sem áttu feldin voru flegð LIFANDI!!

Og hvernig er komið fram við dýrin sem er borðað í bandarikjanum! Jésus Kræstur!

Kjúllarnir eru geymndir 10 þúsund saman, þeir stækka svo fljótt (utaf efnum sem þeim er gefið;) að lappinar gefa sig af þyngdini að þeir geta ekki labbað og svelta til dauða,sumir deyja af hjartaáfalli eða stressi, svo eru þeir geymndir þarna með hinum kjullunum sem eru dauðir, svo er þeim bara hent í kassa þegar er verið að flytja þá, verið að henda þeim i vegg að ganni!ogeð! Og hvernig þeim er slátrað er ekki fögur sjón! 

Vitið ég getið ekki sagt frá kýrunum, kálfunum og svínunum! Bara ojj get það ekki! :S

Meina það hvað fær fólk til að gera þetta? að kvelja dýr á svona hrikalegan hátt, hvað er það sem fær það til að halda að það sé í lagi að gera það. Og þetta fólk sem er með búgarði fyrir dýrin,skít sama um hvernig dýranum líður og hvað þau eru að ganga í gegnum. Bara allt þetta fyrir peninga! Sprauta dýrin eitthverjum sterum eða hvað þetta er svo þau verði feit og stór, og líkami þeirra ræður ekki við þetta þannig að lappirnar bugast, dýrin í svo litlun búrum að vöðvanir styrkjast ekki, allur líkaminn þeirra er bara ónýttur! Og öll þessi kvöl er svo fólk geti fengið sér Big Mac á MC´donalds!

 Og svo horfum við á svona og erum í þvílíku sjokki! Segjum hversu hrikalegt þetta er en svo eftir tvo daga er allt gleymd, enginn gerir neitt. Ég ætla að borga mánaðarlega til PETA en guð mig langar að gera miklu meira! En það er svo lítið sem maður getur gert hérna þegar maður býr á Íslandi, maður gæti gert eitthvað ef maður ætti nóg af penginum en ekki eru allir svo heppnir :(

Eg vilti nuna að ég byggi í USA þá gæti maður unnið hjá PETA og gert eitthvað gott af sér, gert eitthvað að gagni í eitt skifti í þessu lífi. Ég verð bara svo reið og sár að sjá svona,að heimurinn skulu vera svona grimmur :(

Ég er samt ekki að segja að svona er farið með öll dýr á búgörðum en það er samt gert! Líka bara hvernig fólk fer með gæludýrin sín, hafið þið  Animals Planit þá getiði séð hvenig fólk fer með dýrin í þættum sem heita held ég Animals Cops eða eitthvað álika, en gott að vita að það er fólk sem er að reyna stopa þetta og bjarga dýranum.

Svo líka þegar verið að nota dýr í tilraunir,það er hrikalegt,það er ekki vísindi! Dýr og maðurinn er allt öðrúvísi! Við erum ekki með sömu genin! Erum gjörolík það sem hefur áhrif á dýr hefur allt örðuvísi áhrif á manninn!! Það á ekki að loka dýr inní búrum! Þau eiga vera frjáls, Þau eiga ekki að kveljast fyrir mannkynið!! Mannkynið á að kveljast fyrir sínar tilraunir. það eru ábyggilega einhverjir fávitar sem vilja láta gera tilraunir á sér fyrir góða upphæð.

 Það mun aldrei vera neitt þess virði (hversu flott það er) að ég muni ganga í fötum sem gerð hafa verið úr dýrum, aldrei. En pælið í þessu næst þegar þið eruð að versla leðurveski eða fara fá ykkur að borða en það er samt ekki farið með dýrin svona á ísl. Hugsið um dýrin!

En já nuna er ég buin að tjá mig aðeins, veit nu ekki hvort einhver nennir að lesa þetta allt.

En þið getið farið á www.petatv.com og séð myndbönd um þetta en ég mundi ekki vera horfa á þetta nema þið treystið ykkur til þess (samt ekki oll svona ljot um dyramisþyrmingu)Ég held nú bara að sálin min sé soldið skemmt eftir. En á þessari síður getið þið líka styrkt PETA og fleira.

    


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.12.2007 21:01:15 / sandrasif

hætt ??

Já já það er bara svoleiðis, um leið og ég blogga þá er ekkert commentað og enginn bloggað.. ég er hneyksluð!!

Ég er nokkuð viss um að þessi síða sé hætt ! ekkert ber á öðru !!!

Hvað segiði um það stelpur ??

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.11.2007 19:58:05 / sandrasif

Tími til kominn !!

Það er alveg svakalega mikill áhugi fyrir því að blogga á þessari síðu, eða erum við að reyna að slá met í bloggleysi ? Veit það ekki..

Ekkert svakalega mikið að ske hjá mér þessa dagana. Skólinn að verða búinn eins og allir vita og prófin að taka við! Úff ég svolítið kvíðin.. þarf nefnilega að fá svolítið hátt á tveimur prófum til að ná áfanganum og er alveg á mörkunum að höndla það álag :S

Mér finnst svolítið skrítið hvað ég er allt í einu orðin stressuð yfir hlutum sem ég tók bara með ró og næði fyrir um tveimur árum síðan... eins og prófin og PENINGAR !! Er endalaust í stressi yfir þeim, alveg með eindæmum !!

Eins og þið hafið lesið þá hef ég ekkert svakalega mikið áhugavert að segja, þannig að ... ég ætla að láta þetta gott heita í bili og vona alveg innilega að stelpurnar séu mér sammála í því að þessa síða sökkar í augnablikinu og að við verðum að fara að bæta úr þessu bloggleysi okkar :D

Adios - Sandra sætasta ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.10.2007 09:24:30 / linda

Hvíldu í Friði Elsku Besti PABBI MINN

              Hvíldu í Friði Elsku Pabbi minn                        

Elsku Pabbi 

Þú ert besti pabbi í öllum heimi!

Ég elska þig útaf lífinu, ég trúi því ekki enn að þú sért farinn frá mér og okkur. Þetta er enn svo óraunverulegt. En ég öðlaðist aðeins meiri skilning um að þetta væri að gerast eftir að ég las bréfin sem þú sendir mér og öllum sem þér þykir vænst um. Við lásum þau saman í kvöld við kertaljós. Þetta er fallegasta bréf sem ég hef lesið og mun aldrei gleyma hvað í því stendur.

Þú gjörsamlega bjargaðir mér með þessum bréfum þínum pabbi. Auðvitað er þetta rosalega erfitt og sorgin er hræðileg en er samt bara rétt að byrja. Þetta er ólýsanleg sorg og mér er búið að líða alveg hræðilega. Ég veit ekki hvernig ég á eftir að komast i gegnum þetta en ég mun gera það vegna þess ég á svo svakalega marga góða vini, fjölskyldu og kunningja mér við hlið og það vissir þú líka.

 Ég sá hvernig þér var búið að líða enda vorum við eins og BESTU VINIR seinasta mánuðinn. Við ræddum saman um allt og þú gast tjáð mér allar þínar tilfinningar og ég þér mínar (þó vissi ég aldrei að svona myndi fara). Ég er svo þakklát fyrir þann tíma sem eg fékk með þér elsku pabbi.  Ég veitti þér allann þann stuðning sem ég gat gefið þér en ég er ekki reið úti þig pabbi minn. Ég veit þú varst bara allveg búinn á því,  gast bara ekki meir, en ég veit líka að þú elskaðir okkur börnin þín útaf lífinu.

En nú ertu kominn í friðinn og svífur örugglega bara á skýji og ert hinn hamingjusami maður sem þú varst áður. Spilar golf og ert að veiða. Þú varst svo mikil félagsvera, þú áttir frábæra og yndislega vini sem öllum þótti svo vænt um þig, systkini þín, vinir, kunningjar og auðvitað við FJÖLSKYLDAN þín. Þú hafðir svo gaman að lífinu alltaf svo stutt í hláturinn og fyndna brosið þitt. Svo  áttiru mörg áhugamál t.d. bridge, golf og veiði. Þú vildir helst aldrei vera einn.  Einnig varstu svo hjálpsamur, þú varst alltaf tilbuinn ef einhverjum vantaði hjálp, þú varst alltaf traustur og stóðst við það sem þú sagðir.

 Þó að þú sért farinn, þá ertu samt ekki farinn úr huga okkar og munt aldrei gera. Ég veit að þú horfir á eftir okkur börnunum þínum. Núna er þitt hlutverk að vernda okkur vera VERNDARENGILLINN okkar

Ég elska þig og við hittumst svo seinna þegar minn tími er kominn.

Ég, Sigrún og Benjamín munum alltaf minnast þín (ég mun alltaf tala mikið um pabba okkar við Benjamín, besta pabba í heimi)

Þú elskaðir okkur þrjú (börnin þín) útaf lífinu en þú bara gast ekki verið lengur hjá okkur. Þér leið bara ekki vel en núna ertu orðinn engill sem hugsar um okkur, verndar og gætir.

Takk elsku pabbi fyrir allar þær frábæru stundir sem við erum búin að eiga saman gegnum ævina. Minning þín lifir alltaf i hjarta mínu.

Ég fer með bænir til þín á hverju kvöldi og mun alltaf gera

Hvíldu í friði elsku besti pabbi minn

þín Litla pabbastelpa

Linda Guðrún

 Ég er á langferð um lífsins haf
og löngum breytinga kenni
Mér stefnu frelsarinn góður gaf,
ég glaður fer eftir henni.
Mig ber að dýrlegum ljósum löndum,
þar lífsins tré gróa á fögrum ströndum
við sumaryl og sólardýrð.

Og stundum sigli ég blíðan byr
og bræðra samfylgd þá hlýt ég
og kjölfar hinna er fóru fyrr
án fyrirhafnar þá nýt ég.
Í sólarljósi er særinn fríður
og sérhver dagurinn óðar líður,
er siglt er fyrir fullum byr.

En stundum aftur ég aleinn má
í ofsarokinu berjast.
Þá skellur niðadimm nóttin á
svo naumast hægt er að verjast.
Ég greini ei vita né landið lengur,
en ljúfur Jesús á öldum gengur
um borð til mín í tæka tíð.

Mitt skip er lítið en lögur stór
og leynir þúsundum skerja.
En granda skal hvorki sker né sjór
því skipi er jesús má verja.
Hans vald er sama sem var það áður,
því valdi er særinn og stormur háður.
Hann býður: "Verði blíðalogn!"


Þá hinsti garðurinn úti er,
ég eigi land fyrir stöfnum
og eftir sólfáðum sæ mig ber
að sælum, blælygnum höfnum.
Og ótal klukkur ég heyri hringja
og hersing ljósengla Drottins syngja:
"Velkominn hingað heim til vor!"

Lát akker falla! Ég er í höfn.
Ég er með frelsara mínum.
Far vel, þú æðandi dimma dröfn,
vor Drottinn bregst eigi sínum.
Á meðan akker í ægi falla
ég alla vinina heyri kalla,
sem fyrri urðu hingað heim.

Tandberg-- Valimar V. Snævarr

  

Hvíldu í friði elsku Pabbi.

Linda Guðrún

 


» 63 hafa sagt sína skoðun

07.10.2007 01:03:25 / sandrasif

Akureyri!! Ójáá

Ohhh er að segja ykkur að ég er búin að skrifa þetta 3 sinnum... ég eyðilagði þetta í fyrsta skiptið og svo kom hún Birgitta frænka mín og var eitthvað að skipta sér af þessu og þurrkaði bara allt útaf... ég meina það! Fær maður ekkert að gera í friði :) hehe

En jæja það sem ég vildi sagt hafa er að ég er á Akureyri hjá FRÆNKI MÍN Birgittu og við erum að DJAMMA.. að sjálfsöðu! Hvað er hægt að gera annað upplífgandi á laugardegi á AK, haaa!!! :) Ég ætla bara vona að allir skemmti sér konunglega, þeir sem eru að djmma og gangi hægt um gleðinnar dyr og verði sér ekki að fíflum, þá gengur allt vel ;)

En stelpur mínar þið verðið nú að fara að henda inn myndunumfrá því á glimmer ballinu.. það eru liðnir tveir dagar hehehe :) æjji ég er eitthvað svo fyndin hahah eða bara svona drukkin! Held samt ekki ;)

En hey ég verð að fara.. er að fara á Sjallan... bæb

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.10.2007 10:08:55 / sandrasif

Þynnka..

Glimmerballið í gær var alveg ágætt en hefði mátt vera mun betra, byrjuðum hjá Tönju sætu sem átti afmæli! Til hamingju sæta ;) fórum svo í limmu á ballið..

Nenni ekki að skrifa um þetta, það má einhver annar!

Er að drepast úr þynnku í skólanum og hef engan pening eða síma.. er svo svöng hahah smá kvart :)

Svo er það bara Akureyri eftir skóla... MEIRA DJAMM :D vúhúúú

Sandra


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.09.2007 18:28:45 / iris

Girls...

 

   Jæja stelpur mínar ( Linda,sandra,Jórunn,Birna,Saga,Tanja,Sunna,Steinunn) það verður eldaður matur heima hjá mér á mánudaginn næsta, hún mútta tútta er að fara á fyllerís ferð með vinnuni þá og gistir þar, þannig að þið getið gist ef þið viljið ;) 

 Mætting klukkan 19:30! Og allar að mætta þá! Við skellum okkur þá útí búð og kaupum eitthvað að borða :D  Svona 2000 kall á mann ætti að duga.

En hvað viljið borða!?!?! Koma með hugmyndir....og eitthvað sem VIРgetum eldað!

Svo hvað þið viljið vera efiir það....Getum tekið DVD,spila eða bara eitthvað. Koma með hugmyndir;)

Ef Birna eldar þá mun maturinn líta svona út!

 

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

26.09.2007 19:14:28 / linda

WHAT A VIDEO hahahhaha

http://youtube.com/watch?v=fbGkxcY7YFU

hahahahhehe tekkið á myndbandinu!! og segið svo hvað finnst ykkur um þetta???


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 20:21:25 / iris

MYNDIR FRÁ FG PARTINU

 

 KOMNAR MYNDIR FRÁ FG - PARTÝINU + BÆRINN! :)

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.09.2007 18:44:14 / iris

nyjar myndir

 

   Var að skella myndum frá Búlgaríudjamminu seinasta laugardag, flestir sem vour útí búlgarí hittumst hjá Erlu og skelltum okkur svo í bæinn. Allveg til 8, Takk fyrir kvöldið elskunar ;) Hittumst vonadni öll í október aftur!

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.09.2007 11:06:03 / jorunnsif

??

Herðu stelpur mínar það verður ekkert Caruso á föstudaginn, það var ekkert laust. En við skellum okkur bara á Fridays og höldum uppá afmælið mitt þar, ekki allir sáttir með það?

Endilega láta vita sem fyrst hverjir ætla að koma og hverjir ekki.. ?

Ég, Ragga, Sandra, Birna, Linda, Íris, Anna, Hildur, Saga, Gulla, Steinunn, Tanja, Sunna..?

Láta vita ;)

Förum örugglega milli 19 og 20 á mrg.

JÓRUNN ;*


» 11 hafa sagt sína skoðun

05.09.2007 20:33:00 / sandrasif

ATH!!!

Getum ekki farið á Caruso næsta föstudag því það er allt bókað!! Vorum að pæla í að fara bara á fridays eða eitthvað. Endilega að koma með hugmyndir ef þið viljið fara eitthvað annað :)


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Party Animals

 

Leitarbox